
180 with Sven
Í þessum podcast þáttum ætlum við Linda og Svenni að fara 180 gráður og leita að upplýsingum og fróðleik um öll heimsins og himinsins málefni, niður í hin myrkustu málefni og hin björtustu því að ekkert er okkur óviðkomandi. Fylgstu með okkur og deildu að vild.Um okkur:Linda er draumóramanneskja sem vill sjá heiminn glimmerstráðan og kærleiksríkan og án vondu nornarinnar sem skemmir öll ævintýrin. Hún elskar að aðstoða einstaklinga sem lífsmarkþjálfi, samskiptaráðgjafi og sem rithöfundur. Svenni er hvatvís ævintýragarpur sem á samt afar fallegt hjarta og vill heiminum allt það besta. Hann klífur fjöll og fer um öll fyrnindi landsins og víðar að Víkingahætti en sest svo niður stöku sinnum og fær til sín ýmsa aðila sem hafa frá einhverju að segja sem skiptir máli að heyra.
180 with Sven
#19Siggu Kling þekkja flestir Hún er yndisleg
Siggu Kling þekkja flestir en hvaða atburðir lífsins hafa mótað hana mest og hvernig uppgötvaði hún hæfileika sína? Um hvað snýst þessi tilvera okkar að hennar mati og getum við haft stjórn á henni með því einu að segja abrakadabra?
Framleiðandi- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Volume
Þáttastjórn- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Linda Baldvins
Upptaka - Volume studio